Innlent

Stöðvuðu tvo 17 ára ökumenn á 140 km hraða

Lögreglan stöðvaði tvo sautján ára pilta, sem höfðu mælst á liðlega 140 kílómetra hraða í kappakstri á Hafnarfjarðarveginum við Arnarnesbrú um miðnættið.

Hámarkshraði þar er 80 kílómetrar á klukkustund og verða piltarnir líklega sviftir ökuréttindum. Þá mældist 18 ára piltur á 125 kílómetra hraða á sama stað og einn á rúmlega 140 í Ártúnsbrekku. Þeir fá báðir háar sektir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×