Innlent

Vilja skoða lestarsamgöngur í ljósi hækkandi eldsneytisverðs

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja kanna hagkvæmni og fýsileika þess að koma á lestarsamgöngum milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavíkur og einnig léttlestarkerfi innan borgarinnar.

Tillaga þessa efnis var lögð fram á borgarráðsfundi í morgun. Hún er lögð fram í ljósi breytinga á eldsneytisverði í heiminum, þéttingar byggðar, umhverfisþátta og áherslu á nýtingu innlendra orkugjafa í samgöngum.

Samkvæmt tillögunni vilja sjálfstæðismenn að fyrri úttektir sem unnar hafa verið um lestarsamgöngur á vegum borgarinnar verði endurskoðaðar og uppfærðar og fjárhags-, umhverfis- og skipulagsþættir greindir. Lagt er til að umhverfis- og samgöngusviði verði falin úttektin en að hún verði unnin í samvinnu við skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar og samgönguyfirvöld í landinu, meðal annars um kostun. Þá er lagt til að samráð verði haft við Orkuveitu Reykjavíkur.

,,Borgarráð er reiðubúið að leggja allt að 10 mkr. til þessa verkefnis að því tilskyldu að það verði kostað til helminga af ríki og borg. Umhverfis- og samgöngusvið skal skila til borgarráðs ítarlegri verkefnalýsingu og kostnaðaráætlun vegna verksins eigi síðar en 1. júni nk." segir í tillögunni sem var frestað á fundi borgaráðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×