Innlent

Amerískra áhrifa gætir á Íslandi

Geir H. Haarde
Geir H. Haarde

Geir H. Haarde fór um víðan völl í ræðu sinni á fundi Íslensk-Ameríska verslunarráðsins í New York í dag. Þar talaði hann um samskipti þjóðanna í gegnum árin og fór yfir stöðuna í viðskiptalífinu. Hann sagði margt líkt með þjóðunum sem hefur gert það að verkum að þeim hefur gengið svo vel á síðustu árum.

Hér að neðan má sjá bút úr ræðu forsætisráðherra.

„Í gegnum árin hafa Bandaríkin og Ísland átt mjög vinalegt og gott samband. Það samband snýr að stjórnmálum, menningu og síðast en ekki síst viðskiptum. Rétt eins og margir aðrir íslendingar fékk ég tækifæri til þess að mennta mig í þessu landi og á góðar minningar frá því ég bjó hér. Margir íslendingar deila þessari reynslu minni og þjóðir okkar eru að mörgu leyti mjög líkar. Í báðum löndum er einstaklingurinn mikils metinn og áhættufjárfestingar eru mikils metnar. Hver og einn hefur tækifæri til þess að skapa sína velferð."

Forsætisráðherrann sagði einnig:

„Á meðan Ísland er evrópskt land og er stolt af því að vera hluti af norrænni velferð er amerískra áhrifa að gæta í landinu, ekki síst í viðskiptalífinu þar sem engilsaxnesk hugmyndafræði virðist meira ríkjandi en evrópskrar eða jafnvel skandinavískrar. Kannski, er það vegna þeess að við eigum það sameiginlegt að vera frjáls, kraftmikil og tökum áhættu í viðskiptum sem skýrir hvers vegna okkur hefur gengið svona vel."

Hér má sjá ræðu forsætisráðherra í heild sinni




Fleiri fréttir

Sjá meira


×