Mávarnir fúlsuðu við eitrinu 13. mars 2008 13:50 Mávarnir litu ekki við eitruðu brauðmolunum.
57 mávar voru drepnir með eitri í tilraun sem framkvæmd var fyrir tilstilli Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu á liðnu ári. „Það sem kom einna mest á óvart við þessa tilraun var að einungis um helmingur beitunnar skilaði sofandi mávi," segir í frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Tilraunin var gerð í Þerney á Kollafirði og í Garðaholti á Álftanesi í júní 2007. Svæfa mátti allt að 600 pör en varp árið 2007 var lélegt, þriðja árið í röð. Skýrsla um málið hefur nú verið kynnt. „Í Þerney var svefnlyf sett í 74 hreiður," segir í fréttinni. „28 mávar fundust sofandi á hreiðri, 5 sofandi í varpi, 5 sofandi í sjó. 16 beitur voru óétnar og 20 týndar. Í Garðaholti voru 42 hreiður beitt, 19 mávar fundust sofandi í hreiðri, enginn í varpi og 2 á sjó. 13 beitur voru óétnar og 8 týndar." Því skilaði aðeins helmingur beitunnar sofandi mávi, fjórðungur var ekki étinn og restin hvarf án þess að sofandi mávur hafi fundist og afdrif beitunnar því óljós. Í skýrslunni segir að þetta háa hlutfall týndrar beitu sé áhyggjuefni og að verði svæfing reynd á ný þarf að endurskoða blöndun beitunnar til að lækka það. „Ekki ólíklegt að einhverjir mávanna hafi étið beituna án þess að sofna eða drukkna og jafnvel ælt henni upp hálfmeltri, " segir í skýrslunni. Í skýrslunni kemur einnig fram að helsti kostur svæfingar fram yfir skotveiðar sé að meiri líkur séu á því að þannig sé hægt að minnka varp verulega með einu áhlaupi. Helsti ókostur svæfingar felst hins vegar í hættu á að friðaðar tegundir komist í beituna.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira