Innlent

Stal pelsi frá konu í erfidrykkju

Hann reyndist vandlátur þjófurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greip á dögunum.

Þannig var að kona hafði tilkynnt um að mjög dýrmætum pelsi hennar hefði verið stolið þar sem hún hafði skilið hann eftir í fatahengi veislusalar í miðborginni þar sem hún var við erfidrykkju.

Nokkrum dögum síðar var lögreglu greint frá því að maður, sem var illa til fara að öðru leyti en því að hann var í pelsi, væri að spígspora um borgina. Þegar lögreglumenn voru við það að gefast upp að leita mannsins birtist hann skyndilega kotroskinn fyrir framan þá og var hann handtekinn.

Segir í frétt lögreglunnar að hann hafi ekki munað eftir því hvort hann hefði verið í umræddri erfidrykkju og gripið pelsinn með sér á leiðinni út en það hefði vel getað verið. Konan bar strax kennsl á flíkina og fékk hana afhenta að nýju. Maðurinn verður væntanlega ákærður fyrir þjófnað og mun sæta refsingu fyrir vikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×