Innlent

Vilja að Ísland hafi frumkvæði í friðarmálum Miðausturlanda

Stefán Pálsson er formaður Samtaka hernaðarandstæðinga.
Stefán Pálsson er formaður Samtaka hernaðarandstæðinga. MYND/GVA

Samtök hernaðarandstæðinga standa fyrir útifundi á Ingólfstorgi á laugardag á alþjóðlegum baráttudegi gegn stríðinu í Írak.

Þá verða um það bil fimm ár frá því að ráðist var inn í Írak, en það var gert aðfaranótt 20. mars 2003. Í tilkynningu frá hernaðarandstæðingum kemur fram að þeir hafi sent utanríkisráðherra og utanríkismálanefnd Alþingis tillögur í tíu liðum um hvernig binda megi enda á hernám Íraks og koma á friði í landinu.

Þar er gert ráð fyrir að allar erlendar hersveitir og málaliðar verði kallaðir burt og að dregið verði verulega úr stærð og umfangi bandaríska sendiráðsins og erlendir verktakar hverfi á brott. Enn fremur að Sameinuðu þjóðirnar verði í forsvari fyrir sveitum sem vinni að uppbyggingu friðar í Írak í samvinnu við fjölþjóðleg samtök og stofnanir á svæðinu og víðar. Þá er lagt til að skuldir Íraks verði afskrifaðar og að íbúar landsins fái full yfirráð yfir olíulindum landsins.

Þá vilja hernaðarandstæðingar að sett verði af stað sannleiks- og sáttaferli þar sem mannréttindabrot verði rannsökuð og upplýst með réttlæti og sættir að leiðarljósi. Enn fremur að sett verði í gang friðarferli fyrir öll Miðausturlönd.

Lagt er til að Ísland hafi frumkvæði að því að setja fram tillögur í þessum anda og leiti eftir samvinnnu við önnur ríki, þar á meðal þau ríki sem studdu innrásina en hafa nú annað hvort dregið stuðning sinn til baka eða hætt þátttöku í hernáminu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×