Innlent

Heildarafli dróst saman um 27 prósent milli ára

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, reyndist 27 prósentum minni en á sama tíma í fyrra. Alls nam aflinn rúmlega 85 þúsund tonnum í febrúar en hann var um 238 þúsund tonn í fyrra.

Botnifiskafli dróst saman um 3800 tonn á milli ára. Minnkaði þorskaflinn um rúm sjö þúsund tonn en upp á móti því vógu aukinn ýsu- og ufsaafli. Þá dróst uppsjávaraflinn saman um nærri 150 þúsund tonn og munar þar mest um minni loðnuveiði í febrúar í ár en í sama mánuði í fyrra.

Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 22 prósent miðað við sama tímabil 2007 sé hann metinn á föstu verði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×