Innlent

Kjarabætur aldraðra og öryrkja í samræmi við lög

Kjarabætur til aldraðra og öryrkja breytast í samræmi við ákvæði laga þar um sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Þar innti Ellert B. Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, ráðherrann eftir því hvaða kjarabót fyndist fyrir þessa hópa í yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar í tengslum við nýgerða kjarasamninga á vinnumarkaði. Ellert sagðist hafa fengið fjölda fyrirspurna vegna málsins og benti hann á að aldraðir og öryrkjar sætu ekki við kjarasamningaborðið. Sagði hann forsætisráðherra nokkurs konar réttargæslumanns þessa fólks og því væri kallað eftir svörum.

Geir H. Haarde sagði að um réttindi aldraðra og öryrkja giltu lög og það væri áréttað í samningunum sem gerðir hefðu verið í febrúar. Lagaákvæðin kvæðu á um að bætur þessara hópa hækkuðu eftir því sem laun hækkuðu og ef verðlag hækkaði meira en laun tækju bætur mið af verðlagi. Bætur væru því eiginlega verðtryggðar.

Þá benti hann á að ríkisstjórnir hefðu á síðustu misserum gert sérstaka samninga við þessa hópa um að bæta kjör þeirra og ákvæði þeirra samninga væru að koma til framkvæmda á þessum misserum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×