Innlent

Björgvin virkastur ráðherra í umfjöllun ljósvakamiðla

MYND/Pjetur

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra reyndist virkastur sem viðmælandi ljósvakamiðla í tengslum við umfjöllun þeirra um ráðherrana eða ráðuneyti þeirra á síðari hluta síðasta árs.

Þetta leiðir nýr ráðherrapúls frá Creditinfo Ísland í ljós. Á tímabilinu 24. maí til 31. desember í fyrra kom Björgvin fram í rúmlega helmingi þeirra 150 ljósvakafrétta sem tengdust honum eða hans ráðuneyti. Næstur á eftir Björgvini var Geir H. Haarde forsætisráðherra sem kom fram í 47 prósentum af rúmlega 320 fréttum um hann eða hans ráðuneyti.

Þriðja var svo Ingibjörg Sólrún Gísladóttir með 40 prósenta tíðni en oftast var fjallað um hana eða hennar ráðuneyti, eða í nærri 390 fréttum. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur frá upphafi síns ráðherraferlis mælst í fyrsta eða öðru sæti en hann er nú í fjórða sæti.

Almennt virðast Samfylkingarráðherrar virkari sem viðmælendur ljósvakamiðla á seinni hluta síðasta árs en ráðherrar Sjálfstæðisflokksins. Þeir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra eru neðstir á lista Ráðherrapúlsins. Báðir voru viðmælendur í um 22 prósentum frétta sem snertu þá eða ráðuneyti þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×