Innlent

Laun hækkuðu mest í iðnaði í fyrra

MYND/GVA

Heildarlaunakostnaður í landinu jókst um á bilinu 6,3 til 9,6 prósent á milli áranna 2006 og 2007 samkvæmt vísitölu launakostnaðar sem birt er á vef Hagstofunnar.

Laun hækkuðu mest í iðnaði, eða um tæp 9,6 prósent, en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, um 6,3 prósent. Þá hækkuðu laun í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu um 6,4 prósent en um 7,4 prósent í samgöngum og flutningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×