Þorsteinn er ekki af baki dottinn 9. mars 2008 17:17 Þorsteinn M. Jónsson.
Þorsteinn M. Jónsson, íbúi á Laufásvegi 73 segist hvergi nærri af baki dottinn þrátt fyrir margra ára baráttu fyrir því að byggja bílskúr á lóð sinni. Embætti forseta Íslands hefur ítrekað lagst gegn hugmyndinni og meðal annars haldið því fram að bílskúrinn megi ekki byggja af öryggisástæðum. Úrskurðarnefnd skipulags og byggingarmála hefur nú vísað frá synjun borgarinnar á umsókn Þorsteins og raunar einnig umsókn Einars Eiríkssonar sem vill byggja sólskála á lóð sinni en Einar býr á Laufásvegi 74. Ástæðan fyrir andstöðu forsetans er sú að gestabústaður embættisins er á Laufásvegi 72, beint á móti húsi Þorsteins og við hliðina á húsi Einars.„Úrskurðarnefndin hefu vísað því frá að það sé hægt að hafna mér á þessum forsendum," segir Þorsteinn en Reykjavíkurborg synjaði honum um byggingu bílskúrsins af öryggisástæðum." Barátta Þorsteins fyrir því að fá að byggja bílskúrinn hefur staðið í mörg ár en þrisvar sinnum hefur málið farið sína leið í kerfinu. Gestahús forsetans er gegnt húsi Þorsteins.„Nú er ég bara að ganga frá umsókn í enn eitt skiptið og svo sér maður til hvað gerist," segir Þorsteinn og vonar að nú gangi málið í gegn. Hann segist ekki skilja andstöðu forsetans við framkvæmdagleði nágranna sinna. Því síður segist hann átta sig á því hvernig bílskúrinn geti ógnað öryggi þeirra tignu gesta sem annað veifið gista í húsinu. „Það er reyndar aldrei neinn í þessu húsi. Ólafur kemur stundum með gesti í hádeginu en annað er það ekki. Stundum hvarflar að manni að þeir séu einfaldlega að leggja lykkju á leið sína bara til að vera með leiðindi," segir Þorsteinn.Hér vill Þorsteinn byggja tvöfaldan bílskúr.Þorsteinn bendir einnig á að ef litið sé til öryggissjónarmiða ætti bílskúrinn bara að hjálpa til í þeim efnum. „Ég er þá ekki með bílana mína úti á götu fyrir framan forsetabústaðinn á meðan." Þorsteinn segir að um venjulegan tvöfaldan bílskúr sé að ræða. „Hann er bara svipaður og sá sem hefur verið byggður hér á Laufásvegi 77. Eini ljósi punkturinn í þessu máli öllu er að nú hefur maður fengið tíma til að útfæra hugmyndina aðeins betur. Þess vegna ætla ég nú að reyna að byggja jarðhýsi undir skúrinn og bæta við anddyri og kvisti," segir Þorsteinn M. Jónsson, vongóður um að skúrinn fari að rísa.
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Fleiri fréttir „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Sjá meira