Landlæknir styður breytingarnar á neyðarbílnum og hvetur til sátta 8. mars 2008 20:56 Sigurður Guðmundsson, landlæknir.
Sigurður Guðmundsson, landlæknir, segir að faglegar forsendur ákvörðunarinnar um að breyta fyrirkomulagi við mönnun neyðarbílsins hafi verið réttar. Þetta kemur fram í grein sem Sigurður skrifar á vef Landlæknisembættisins. Hann segist einnig ávallt hafa stutt þessar breytingar og talar fyrir því að um þær náist sátt. Í greininni fer hann yfir málið í heild sinni en nokkur gagnrýni hefur verið uppi um þá ákvörðun að hætta að manna neyðarbílinn með lækni eins og áður tíðkaðist. „Í þá tæpa tvo mánuði sem liðnir eru frá því að breyting þessi tók gildi hafa sjúkraflutningar og viðbrögð við bráðavanda á höfuðborgarsvæðinu gengið vel," segir Sigurður. „Læknir hefur verið kallaður út að meðaltali einu sinni á sólarhring, í samræmi við verklagsreglur, en snúið við áður en á útkallsstað kom í um það bil helmingi þeirra tilvika. Vel er fylgst með ferli og árangri flutninga á hverjum degi og sérstök úttekt verður gerð innan tíðar á fyrstu vikum og mánuðum eftir breytingarnar." Þá segir landlæknir að hann hafi stutt þær breytingar sem orðið hafi á starfsseminni og faglegar forsendur þeirra, „enda verður ekki séð að öryggi sjúklinga sé stefnt í hættu með þeim, heldur sé hér frekar stigið skref til bættrar nýtingar þeirrar þjónustu og mannafla sem við höfum yfir að ráða. Miklu máli skiptir að um breytingarnar náist sátt, en það verður ekki gert nema að umfjöllun og fréttaflutningur sé í eðlilegu jafnvægi," segir Sigurður Guðmundsson, landlæknir. Grein Sigurðar má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Fleiri fréttir Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Sjá meira