Flugvöllur á Hólmsheiði vond hugmynd 8. mars 2008 12:01
Innanlandsflugvöllur á Hólmsheiði er vond og óskynsamleg hugmynd út frá veðurfarssjónarmiðum, segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sem telur að ef völlurinn hefði verið kominn á heiðina núna, hefði hann verið meira og minna lokaður vegna veðurs síðustu þrjá til fjóra daga. Eini staðurinn sem verið er að skoða af einhverri alvöru sem hugsanlegt flugvallarstæði í staðinn fyrir innanlandsflugvöllinn í Vatnsmýri er Hólmsheiði. Litlar spurnir hafa reyndar farið af þeirri rannsókn sem Veðurstofan hóf fyrir tveimur árum en hún mælir þar vinda, hita og raka. Núverandi borgarstjóri hefur sagt að flugvöllurinn fari ekki upp á Hólmsheiði, borgarfulltrúarnir Hanna Birna Kristjánsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson hafa sagt að það taki 3-5 ár að kanna veðráttuna á heiðinni en samtökin Betri byggð halda því fram að nægar veðurfarsupplýsingar ættu að liggja fyrir næsta vor. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur heldur úti veðurvakt á heimasíðu sinni og í pistli sem hann skrifar í gær segir hann að síðustu daga hafi veðráttan verið slík að ef flugvöllurinn hefði verið kominn á Hólmsheiði hefði hann verið meira og minna lokaður. Hann bendir á að fyrirhugað flugvallarstæði sé í um 130 metra hæð yfir sjávarmáli og sú hæð komi fram af fullum þunga þegar hitinn er rétt ofan við frostmark í Reykjavík. Hann tekur sem dæmi að þegar skil gengu yfir með slyddu í Reykjavík á fimmtudag og tveggja gráðu hita hafi hitinn verið við frostmark á Hólmsheiði með snjókomu sem leiði af sér verra skyggni og verri bremsuskilyrði. Krapasnjór í fyrrinótt og gær hafi hins vegar ferið fannfergi á Suðurlandsvegi ofan byggðar. Þá hafi rakastigið á Hólmsheiði verið mun hærra síðustu fjóra daga - sem sé ávísun á mjög lág ský sem dragi úr skyggni.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira