Fangelsi og há fjársekt fyrir skattsvik og bókhaldsbrot 7. mars 2008 21:16
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellt skattalaga- og bókhaldsbrot sem framkvæmdastjóri, stjórnarformaður og prókúruhafi einkahlutafélags. Þá var hún og fyrirtækið dæmd til að greiða 78 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs. Konan var ákærð fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum á tilteknum tímabilum á árunum 2006 og 2007 og þannig komist hjá því að greiða nærri 40 milljónir í virðisaukaskatt. Þá var hún einnig ákærð fyrir að hafa ekki staðið skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda vegna tímabilanna febrúar til og með júní 2007 og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna tímabilanna nóvember og desember 2006 og febrúar til og með júní 2007. Þar var alls um að ræða tæpar tólf milljónir. Enn fremur var hún ákærð fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald og varðveita bókhaldsgögn með reglubundnum hætti vegna rekstrarársins 2006 og janúar til og með ágúst rekstrarárið 2007. Konan játaði með afdráttarlausum hætti brot sín og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar. Þá var einnig litið til þess að konan hefði hreint sakavottorð. Sem fyrr segir hlaut hún átta mánaða fangelsisdóm sem skilorðsbundinn er til tveggja ára og svo ber henni og félaginu að greiða 78 milljónir króna í sekt innan fjögurra vikna. Geri hún það ekki kemur til tólf mánaða fangelsi.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira