Tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga barnapíu 27. febrúar 2008 12:23 MYND/Ingólfur
Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórtán ára stúlku sem gætti tveggja sona hans. Málsatvik voru þau að stúlkan gætti sona hans á heimili hans að kvöldi og nóttina þegar þingkosningar fóru fram síðastliðið vor. Maðurinn kom heim undir morgun mjög ölvaður og í stað þess að greiða stúlkunni fyrir pössunina beitti hann hana bæði kynferðislegri áreitni og hafði við hana kynferðismök. Maðurinn neitaði sök. Hann sagðist hafa verið mjög ölvaður þegar hann kom heim en teldi sig muna mjög vel atburðarás morgunsins. Dómurinn taldi hins vegar að ekkert hefði komið fram í málinu sem gæfi tilefni til þess að ætla að stúlkan hefði skrövkað í málinu. Þá var einnig litið til þess að stúlkan hefði grátið þegar hún sagði tveimur vitnum frá atvikinu og að hún hefði ekki treyst sér til vinnu sama dag og brotin fóru fram. Þá þótti rannsókn lögreglu á munnvatni á bringu stúlkunnar einnig benda til sektar mannsins. Enn fremur leit dómurinn til þess að ákærði hefði við fyrstu yfirheyrslu borið fyrir sig minnisleysi um kynferðisbrotin án þess að synja fyrir frásögn stúlkunnar. Þótti dómnum því hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði gerst brotlegur við stúlkuna. „Er engum vafa undirorpið að ákærði hafi brotið gegn sjálfsákvörðunarrétti og athafnafrelsi stúlkunnar og vanvirt friðhelgi líkama hennar til að koma fram vilja sínum. Gerðist hann þannig sekur um ofbeldi og ólögmæta nauðung í skilningi 1. mgr. 194. gr. hegningarlaganna og ber því að sakfella hann fyrir nauðgun," segir í dómnum. Maðurinn hafði ekki áður hlotið refsingu og var horft til þess. Þá var einnig litið til þess að brotið var gagnvart ungri stúlku, sem var að gæta barna hans og átti sér einskis ills von, en ákærði hefði misnotað sér kringumstæður og brotið gróflega gegn því trúnaðartrausti, sem eðlilega átti að ríkja í samskiptum hans við barnapíuna. Hann ætti sér engar málsbætur og þætti hæfileg refsing tveggja ára fangelsi.
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fleiri fréttir Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Sjá meira