Minni olíuflutningar en gert var ráð fyrir 27. febrúar 2008 05:00 Ekki er talið útlit fyrir að olíuflutningar við landið aukist mikið, þvert á spár undanfarinna ára.
Mun minni er flutt af olíu um íslenska lögsögu en spár gengu út frá fyrir nokkrum árum. Um er að ræða flutinga frá Norðvesturhluta Rússslands til Vesturheims, en leið flutningaskipa milli þessara heimshluta liggur óhjákvæmilega um efnahagslögsögu Íslands. Skipin sem flytja olíu við íslenskar strendur eru einnig minni en Norðmenn og Rússar ætluðu. Frá Norðmönnum liggja fyrir upplýsingar um farm þeirra skipa sem fluttu olíuafurðir úr Barentshafi á síðasta ári. Um 70 prósent af farmi þessara skipa er þekktur og allt að 39 prósent af flutningnum er skráð hráolía, um 7 prósent milliþung olía, um 17 prósent gasolía og afgangurinn ýmsar aðrar olíuafurðir. Einkarekin rússnesk olíufélög hafa fullan hug á að skipa út meiri olíu á norðursvæðinu og eru að vinna að því á nokkrum stöðum. Það er hinsvegar fyrirtæki í ríkiseign, Transneft, sem hefur einkaleyfi á rekstri dreifilagna fyrir olíu og það virðist lítill eða enginn áhugi hjá rússneska ríkinu fyrir lagningu dreifilagna til norðursvæðanna eins og Indiga eða Murmansksvæðisins. Að mati Siglingastofnunar er varla útlit fyrir mikla eða skyndilega aukningu í útskipun á olíu frá Barentshafi nema stefnubreyting verði hjá stjórnvöldum í Rússlandi.Olíuflutningar Rússa 2005 - 2007Árið 2005 278 skip fluttu 9,6 milljónir tonna af olíuafurðum út úr Barentshafi. Megnið af þessum afurðum fór til Evrópuhafna.Árið 2006 206 skip fluttu 10,6 milljónir tonna af olíuafurðum sömu leið. 36 þessara skipa fóru vestur um haf til Bandaríkjanna og Kanada.Árið 2007 212 skip fluttu 9,6 milljónir tonna. 43 skip munu hafa farið vestur um haf til Bandaríkjanna og Kanada.
Mest lesið „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Fleiri fréttir „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Sjá meira