Hermenn kærleikans verðlaunaðir 27. febrúar 2008 07:00 Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sagði starf Hjálpræðishersins vera ríkan þátt í skilningi Íslendinga á því hvað sé að vera hinn miskunnarsami Samverji. Í bakgrunni eru þeir sem tilnefndir voru til Samfélagsverðlaunanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hjálpræðisherinn hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í gær. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Auk verðlaunagrips hlutu samtökin eina milljón króna í verðlaunafé. „Hjá Hjálpræðishernum er engum úthýst," sagði Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins og formaður dómnefndarinnar. „Hann hefur starfað hér á landi í meira en hundrað ár. Kærleikur knýr starfsemina áfram og hefur starf hersins iðulega beinst að þeim sem minnst mega sín í samfélaginu." Auk Hjálpræðishersins voru Saman-hópurinn, ABC-hjálparstarf, Lögfræðiaðstoð Orators og BAS-hópurinn tilnefnd til Samfélagsverðlaunanna. Verðlaunin eru veitt félagasamtökum sem hafa unnið framúrskarandi mannúðareða náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll. Verðlaun voru veitt í fjórum öðrum flokkum í gær: Hvunndagshetjan, Frá kynslóð til kynslóðar, Til atlögu gegn fordómum og heiðurs verðlaun. Hvunndagshetjan var valin Ragna Marinósdóttir, sem hefur nýtt reynslu sína af umönnun fatlaðra sona sinna til hagsbóta öðrum foreldrum fatlaðra barna. Í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar hlutu hjónin Þorsteinn Bjarni Einarsson og Sigríður Steingrímsdóttir verðlaunin, en þau tóku börn í skammtímavist á heimili sínu í átján ár. Í verðlaunaflokknum Til atlögu gegn fordómum var tónlistarmaðurinn Hörður Torfason verðlaunaður. „Það framlag hans að ganga á sínum tíma fram fyrir skjöldu sem samkynhneigður markaði djúp spor á Íslandi, spor sem aldrei mun fenna í," sagði Steinunn við afhendinguna. Að lokum hlaut Guðrún Halldórsdóttir, fyrrverandi skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur, heiðursverðlaun. Þau eru veitt einstaklingi sem hefur helgað líf sitt því verkefni að bæta samfélagið. Guðrún var heiðruð fyrir framlag sitt til menntunar ungmenna og fullorðinna sem hafa staðið höllum fæti í skólakerfinu. Í dómnefnd voru, auk Steinunnar, Reynir Ingibjartsson, formaður Aðstandendafélags aldraðra, Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi, Hildur Petersen, stjórnarformaður SPRON, og Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri á Dalvík.
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Fleiri fréttir „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Sjá meira