Ekki ástæða til þess að breyta úthlutun á byggðakvóta 26. febrúar 2008 14:47 MYND/GVA
Sjávarútvegsráðherra sér ekki ástæðu til þess að breyta úthlutun byggðakvóta eins og formaður Framsóknarflokksins lagði til á Alþingi í dag. Þar sakaði formaðurinn ráðherrann um að hafa tekið byggðakvótaúthlutun inn á sitt borð en ráðherra minnti á að formaðurinn hefði verið í ríkisstjórn í fyrra þegar frumvarp um breytingar á úthlutun byggðakvóta var lagt fram og samþykkt. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, var upphafsmaður utandagskrárumræðu um úthlutun byggðakvóta. Þar sagði hann ráðherra hafa tekið byggðakvótaúthlutun nánast inn á sitt borð en áður hefði Byggðastofnun sett reglur um úthlutunina. Benti hann á að Landssamband íslenskra útvegsmanna hefði haft horn í síðu byggðakvótans og viljað hann feigan. Sjávarútvegsráðherra útdeildi nú lífsgæðunum og það gengi hvorki siðferðislega né stjórnsýslulega. Þá gagnrýndi Guðni hugmyndir Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, um að byggðakvóti yrði settur á uppboð og fjármunum af sölu hans yrði úthlutað til sjávarbyggða. Honum hefði misboðið sú umræða. Sagði Guðni að það hefði reynst vel að fela Byggðastofnun að úthluta byggðakvóta. Úthlutanir hefðu verið til allt að fimm ára í senn og fyrirtæki í sjávarbyggðum hefðu styrkst af þeim sökum. Spurði hann sjávarútvegsráðherra hvort hann vildi viðurkenna að það hefðu verið mistök að flytja byggðakvótann frá Byggðastofnun til ráðuneytis hans. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sagði sérkennilegt að hlusta á Guðna. Benti hann á að frumvarp um breytingar á úthlutun á byggðakvóta hefði verið lagt fram á síðasta þingi og verið samþykkt rétt fyrir síðustu kosningar. Um hefði verið að ræða stjórnarfrumvarp í ríkisstjórn sem Guðni átti aðild að. Benti Einar á að málið hefði fengið afar góða umfjöllun og verið samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Þá sagði ráðherra úthlutun byggðakvótans fara eftir efnislegum reglum og með frumvarpinu hefði verið reynt að skerpa framkvæmd laganna og gera þau gagnsærri. Þannig gætu sveitarfélög og einstaklingar gert ahugasemndir varðandi úthlutun byggðakvótans og taka þyrfti tillit til mismunandi sjónarmiða. Þá andmælti hann því að að um einhvers konar geðþóttaákvörðun ráðherra væri að ræða við úthlutun kvótans.
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Fleiri fréttir „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Sjá meira