Veggjaldið í Hvalfjarðargöngum lækkar 26. febrúar 2008 10:28
Spölur, sem á og rekur Hvalfjarðargöngin hefur ákveðið að lækka veggjald fyrir staka ferð í Hvalfjarðargöngum núna um mánaðarmótin úr 900 krónum í 800 krónur. Jafnframt lækkar veggjald í flestum áskriftarflokkum, en mismikið. Þannig lækkar gjald í þremur flokkum um nálægt 4% en í þremur öðrum flokkum um meira en 20%. Lægsta veggjald áskrifenda eftir breytinguna verður 230 krónur fyrir venjulegan fjölskyldubíl. „Áætlað er að tekjur Spalar, sem á og rekur Hvalfjarðargöng, skerðist um 43 milljónir króna á ári vegna gjaldskrárbreytingarinnar," segir í fréttatilkynningu frá Speli. „Tilefni nýrrar gjaldskrár er væntanleg gildistaka tilskipunar Evrópusambandsins hér á landi varðandi hámarksafslátt vegna gjaldheimtu í veggöngum af ökutækjum sem eru 3,5 tonn eða meira og stunda samkeppnisrekstur," segir ennfremur. „Ákvæði tilskipunarinnar ná til II., III. og IV. gjaldflokks Hvalfjarðarganga og ákvað stjórn Spalar að láta önnur ökutæki í sömu gjaldflokkum njóta líka lækkunarinnar. Áhrifa tilskipunarinnar gætir mismikið í nýrri gjaldskrá en allar breytingar eru til lækkunar og ákveðið var að lækka jafnframt gjald fyrir staka ferð og fyrir áskriftar- og afsláttarferðir í I. flokki, gjaldflokki fjölskyldubíla."Í tilkynningunni er einnig bent á að veggjaldið í göngunum hefur lækkað um tugi prósenta frá upphafi, bæði að krónutölu og miðað við verðlag.„Til gamans og fróðleiks má nefna eftirfarandi um veggjald og bensínverð:• Stök ferð um göngin kostaði 1.000 krónur þegar þau voru opnuð í júlí 1998. Á sama tíma kostaði bensínlítrinn 75,40 krónur (verð með virðisaukaskatti og þjónustu á stöð).• Stök ferð um göngin kostar 800 krónur frá og með 1. mars 2008. Bensínlítrinn kostar 143,80 krónur (miðast við 20. febrúar, verð með virðisaukaskatti og þjónustu á stöð).Með öðrum orðum:• Í júlí 1998 var veggjald fyrir staka ferð jafnvirði rúmlega 13 lítra af bensíni.• Í marsbyrjun 2008 verður veggjaldið, miðað við óbreytt bensínverð, jafngildi 5,5 lítra af bensíni.• Lægsta veggjald áskrifenda verður jafngildi 1,6 lítra af bensíni 1. mars 2008, miðað við bensínverðið 20. febrúar 2008."Gjaldskrá Spalar má sjá í meðfylgjandi skjali.
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Fleiri fréttir „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Sjá meira