Innlent

Rafmagnslaust í Hveradölum

Orkuveita Reykjavíkur tilkynnti um hásepnnubilun núna klukkan 13:25. Bilunin orsakaði það að Lögbergslína datt út sem þýddi það að rafmagnsleysi varð í Hveradölum og á Bláfjallasvæði.

Rafmagnslaust er því í sumarhúsum á svæðinu en verið er að leita bilunar svo hægt sé að koma rafmagni aftur á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×