Erlent

Páfinn hefur áhyggjur af fækkun nunna og munka

Samkvæmt upplýsingum frá Vatikaninu hefur kaþólskum nunnum og munkum fækkað mikið á milli áranna 2005 og 2006 eða um 10% og fór fjöldi þeirra í lok tímabilsins niður fyrir eina milljón manns.

Þessi þróun veldur páfanum áhyggjum því er þvert á töluverða aukningu meðlima kaþólskrar trúar í heiminum á sama tímabili. Aðalástæðan fyrir því hve nunnum og munkum fækkar er að mun færri sækja um vist í klaustrum en látast þar eða hverfa til annarra starfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×