Erlent

Frakkar koma 400 útlendingum frá Tsjad

Franskir hermenn standa við Novotel hótel í N'Djamena skömmu áður en útlendingunum var komið úr borginni.
Franskir hermenn standa við Novotel hótel í N'Djamena skömmu áður en útlendingunum var komið úr borginni. MYND/AFP

Franski herinn hefur komið 400 útlendingum frá Tsjad, að sögn franska varnarmálaráðherrans Herve Morin. Fólkið fór með samtals fjórum flugvélum frá flugvellinum í N'Djamena, höfuðborg Tsjad. Uppreisnarmenn hafa nú umkringt forsetahöllina þar sem Deby forseti og menn hans hafa búist til varnar. Byssushvellir og sprengjugnýr berst þaðan.

Uppreisnarmenn eru taldir njóta stuðnings frá Súdan. Þeir gerðu áhlaup á höfuðborgina í fyrradag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×