Erlent

Áhyggjur af átökum í Tsjad

Hermaður stendur við jeppa lýðræðis- og þróunarsamtaka sem skemmdist 26. nóvember 2007 í Abou Goulem, 90 kílómetra austur af höfuðborginni  Abeche.
Hermaður stendur við jeppa lýðræðis- og þróunarsamtaka sem skemmdist 26. nóvember 2007 í Abou Goulem, 90 kílómetra austur af höfuðborginni Abeche. MYND/AFP

Ráðamenn Afríkusambandsins hafa miklar áhyggjur af átökum í Tsjad. Þar takast á stjórnarherinn og skæruliðar, sem hafa sótt í átt að höfuðborg landsins, N'Djamena. Frakkar eru með orrustuflugvélar og um eitt þúsund manna hersveit í Tsjad, samkvæmt samningi við stjórnvöld.

Þá var ráðgert að þrjú þúsund og sjö hundruð friðargæsluliðar Evrópusambandsins komi til Tsjad á næstu dögum í tengslum við átökin í Darfúr í Súdan. Brottför þeirra frá Evrópu hefur nú verið frestað. Stjórnvöld í Tsjad segja að skæruliðarnir njóti stuðnings súdönsku stjórnarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×