Erlent

Skýr merki um þjóðernishreinsanir í Kenía

Skýr merki eru um þjóðernishreinsanir í Rift-dalnum í Kenía að mati bandarísks erindreka sem þar er að störfum.

Ættbálkar hafa borist á banaspjót í landinu frá því að forsetakosningar fóru fram í landinu 27. desember en þar var forseti landins, Mwai Kibaki, sakaður um að beita brögðum til að tryggja sér sigur.

Jenadayi Frazer, sendiherra Bandaríkjanna í málefnum Afríku, segir að skipulega hafi verið reynt að koma fólki á brott úr Rift-dalnum, en þar hafa átökin verið einna hörðust síðasta mánuðinn. „Þetta eru augljóslega þjóðernishreinsanir," sagði Frazer á blaðamannafundi í dag og bætti við að vítahringur hefnda í landinu hefði gengið of langt.

Talið er að á níunda hundrað manns hafi látist í átökum síðustu vikna og um 250 þúsund hafi þurft að yfirgefa heimili sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×