Bush viðurkennir að hagvöxtur verði lítill á næstunni 29. janúar 2008 13:23 MYND/AP
Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í árlegri ræði á Bandaríkjaþingi í gærkvöldi að hagvöxtur yrði lítill á næstunni en sagði að til langs tíma mætti gera ráð fyrir betri tímum. Bush er ekki vanur að gefa neitt eftir og því er tekið eftir því þegar hann staðfestir niðursveiflu í efnahagslífinu. Bush sagði að það væri óvissuástand í efnahagsmálum; störfum væri ekki að fjölga jafn hratt og áður, þó að laun hefðu hækkað þá hefðu útgjöld fyrir bensín og mat hækkað líka. Við eldhúsborð bandarískra fjölskyldna mætti greina áhyggjur af þróun efnahagsmála. Hins vegar hélt Bush því fram að til langs tíma gætu Bandaríkjamenn verið þess fullvissir að staða hagkerfisins væri sterk. Bush bað þingið að afgreiða fljótt útgjaldapakka sem ætlað er að vera innspýting í hagkerfið. Bush lagði áherslu á nauðsyn þess fyrir Bandaríkin að aðrir orkugjafar en jarðeldsneyti fengju meira vægi. Hann kvartaði undan kjarnorkuvæðingu Írana, þrátt fyrir nýlega skýrslu njósnastofnana um að Íranir væru ekki að reyna að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Hann kynnti engar nýjar áætlanir um fækkun í herjum Bandaríkjanna í Írak. Þetta var síðasta stefnuræða Bush. Nýr forseti verður kjörinn í nóvember og tekur við völdum í janúar að ári.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Sjá meira