Erlent

Annan krefst rannsóknar á ofbeldinu í Kenía

Kofi Annan fyrrum framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna krafðist í morgun rannsóknar á ofbeldi undanfarinna daga í Kenýa. Annan hefur í dag verið að ferðast um svæði þar sem átök blossuðu upp í gær.

Hann segist hafa orðið vitni að skipulögðum mannréttindabrotum af versta tagi. Enn frekari átök urðu í Kenýa í morgun. Heyra mátti byssuhvelli í bænum Nakuru og fréttamenn sáu lík sextán manna sem virtust hafa verið brenndir inni. Útgöngubann er í bænum að næturlagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×