Erlent

Mótmæla nýrri stjórnarskrá í Ekvador

MYND/AFP

Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælum í Ekvador í dag gegn áformum forsetans um að endurskrifa stjórnarskrá landsins. Mótmælin áttu sér stað í Guayaquil stærstu borg Ekvador um 420 km frá höfuðborginni.

Jaime Nebot borgarstjóri segir að nýja stjórnarskráin yrði nokkurs konar „þrælaskjal." Gagnrýnendur segja auk þess að endurbæturnar muni styrkja enn völd forsetans og það muni hræða erlenda fjárfesta frá landinu.

Rafael Correa forseti segir hins vegar að ný stjórnarskrá myndi gera landið að meira réttarfarsríki og takast á við landlægan óstöðugleika í stjórnmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×