Erlent

Annan reynir að miðla málum í Kenía

Kofi Annan á erfitt verk fyrir höndum.
Kofi Annan á erfitt verk fyrir höndum. MYND/AP

Kofi Annan, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kom til Afríkuríkisins Kenía í gærkvöldi til að miðla málum milli deilenda þar.

Mannskæð átök hafa verið þar síðan Mwai Kibaki var endurkjörinn forseti í síðasta mánuði í umdeildum kosningum. Síðan þá hafa forsetinn og stjórnarandstaðan vart talast við og stuðningsmenn þeirra barist af hörku.

Annan var falið að höggva á hnútinn. Við komuna til landsins sagði hann mikilvægt að hefja viðræður hið fyrsta. Til átaka kom í landinu í morgun þegar látnir mótmælendur voru bornir til grafar. Fátt bendir því til þess að Annan hafi erindi sem erfiði í friðarumleitunum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×