Erlent

Flóttamenn frá Tjetjeníu flæða yfir Danmörku

Ný bylgja af flóttamönnum skellur nú á Danmörku í framhaldi af því að landamærin til Austur-Evrópu hafa verið opnuð.

Hér eru að mestu á ferðinni Tjetjenar frá Kákasusfjöllunum sem sækja um hæli í Danmörku og hefur fjöldi þeirra fimmfaldast á skömmum tíma.

Talsmaður stuðningsnefndar Tjetjena í Danmörku segir að eftir að Schengen-samkomulagið náði til Austur-Evrópu hafi Tjetjenar sem búið hafa í Póllandi og Ukraníu flutt sig til Danmerkur í von um betra líf þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×