Þjóðernissinni leiðir forsetakosningar í Serbíu 21. janúar 2008 11:32
Tomislav Nikolic róttækur þjóðernissinni er sigurvegari fyrstu umferðar forsetakosninga í Serbíu. Samkvæmt könnun mun þó koma til úrslitaumferðar þar sem kosið verður milli þeirra tveggja sem fá flest atkvæði. Nikolic sem hallast að Rússlandi virðist hafa unnið með 39,6 prósentum atkvæða á meðan Boris Tadic forseti sem vill meira samstarf við Evrópusambandið er með 35,5 prósent. Nikolic segir að Róttæki flokkurinn yrði ekki stöðvaður, en Tadic segist viss um sigur í úrslitaumferðinni. Kosningarnar eru prófsteinn á framtíð Serbíu þar sem spenna er nú mikil vegna Kosovohéraðs. Útgönguspár höfðu bent til að Nikolic bæri sigurorð af Boris Tadic forseta. Tadic vill stefna að inngöngu Serba bæði í Evrópusambandið og NATO, en Nikolic vill að Serbar fylgi Rússum að málum. Rússar hafa með ráðum og dáð stutt Serba í að standa gegn áformum um að Kosovo verði formlega skilið frá Serbíu. Tadic er einnig andsnúinn sjálfstæði Kosovo. Stjórnmálaskýrendur telja að sigur Nikolic gæti orðið til þess að Serbía snúi aftur á brjaut þjóðerniseinangrunarstefnu í þeim anda sem var við lýði í stjórnartíð Slobodans Milosevic heitins.
Mest lesið Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent Neita öll sök í Reykholtsmálinu Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Tilkynnt um mann með sverð Innlent Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Erlent Fleiri fréttir Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Sjá meira