Örvæntingarfullar mæður leita ásjár ABC barnahjálpar 6. janúar 2008 18:30
Örvæntingarfullar kenískar mæður hafa leitað ásjár með börn sín á heimili ABC barnahjálpar í Naíróbí. Íslenskur sjálfboðaliði þar segir almenning óttasleginn vegna ástandsins í landinu. Keníumenn sem vanir eru að taka á móti flóttamönnum frá nágrannalöndum sínum, flýja nú í þúsundavís yfir landamærin, flestir til Úganda. Í Kibera fátækrahverfinu í Naíróbí fór fólk til messu í lútherskri kirkju sem lagður var eldur að í vikunni. Þar var einnig beðið fyrir því að fólk gæti horfið aftur til fyrri lifnaðarhátta án ótta um líf sitt. Hörmungar blasa við íbúum víða í fáækrahverfum eftir ættbálkaerjur síðustu viku. 250 þúsund manns hafa flúið heimili sín og hálf milljón manna er í mikilli neyð og þörf eftir aðstoð hjálparstofnana. Anna M. Þ. Ólafsdóttir sjálfboðaliði ABC barnahjálpar á heimili þess í austurhluta Naíróbí segir íbúa óttaslegna um framtíðina og áhrif ástandsins á líf þeirra en nú er farið að bera á matarskorti. Hún segir að fæstir hafi átt von á jafn miklum óeirðum og geisuðu í síðustu viku. ABC barnahjálp rekur heimili í Naíróbí fyrir 200 börn. Anna segir að starfsfólk hafi fengið fréttir af fjölskyldu eða vinum sem hafi lent í því að brennt hafi verið ofan af því og konur hafi leitað til heimilisins með lítil börn af því þær væru á vergangi. Anna segir lögreglu hvetja fólk til að fara ekki ekki út að óþörfu. Almenningur býður nú eftir hvort eitthvað verði af fundi sem stjórnarandstöðuleiðtoginn Raila Odinga hefur boðað til á þriðjudag. Þá er búist við frekari óeirðum en stjórnarandstaðan krefst þess að Kibaki forseti segi af sér. Anna segir grátlegt að fylgjast með í návígi aðstæðum sem hún hafi séð í fréttum heima frá fjarlægum löndum. Ástandið hafi mikil áhrif á íbúana sem báru von í brjósti um betri tíð með nýjum forseta.
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Fleiri fréttir Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Sjá meira