Enski boltinn

Cesar til Tottenham

Elvar Geir Magnússon skrifar
Cesar Sanchez.
Cesar Sanchez.

Cesar Sanchez er nýr varamarkvörður Tottenham en hann mun veita Heurelho Gomes samkeppni. Cesar er 36 ára og kemur frá Real Zaragoza á lánssamningi í eitt ár.

Tottenham mun borga 70% af launum leikmannsins.

Paul Robinson var aðalmarkvörður Tottenham í fyrra en hann er nú kominn til Blackburn eftir að Tottenham keypti Gomes frá PSV Eindhoven.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×