Innlent

Yfir hundrað skjálftar norður af Upptyppingum í morgun

Yfir eitt hundrað jarðskjálftar hafa mælst á svæðinu við Álftadalsdyngju norðaustur af Upptyppingum frá því klukkan sjö í morgun.

Mikil skjálftavirkni hefur verið á þessu svæði frá því í fyrravor og hafa mælingar Veðurstofunnar staðfest að um kvikuhreyfingu sé að ræða. Nái kvikan upp í efri hluta jarðskorpunnar aukast líkur á eldgos að mati vísindamanna. Skjálftarnir nú eru á um 13 til 14 kílómetra dýpi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×