Innlent

Línubátur strandaði á leið frá Sandgerði

Frá Sandgerðishöfn.
Frá Sandgerðishöfn.

Engan sakaði þegar línubáturinn Björgmundur ÍS strandaði á leið frá Sandgerði um klukkan hálf fimm í morgun. Björgunarsveitin í Sandgerði kom bátsverjum til aðstoðar og náði bátnum á flot. Talið er að hann sé lítið sem ekkert skemmdur því hann strandaði á sandrifi. Björgmundur er 15 tonn að stærð, smíðaður úr plasti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×