Innlent

Áfengisneysla landsmanna er að snar aukast

Áfengisneysla landsmanna er að snar aukast, ef marka má tölur Rannsóknaseturs verslunarinnar.

Áfengissalan jókst um liðlega 20 prósent í febrúar miðað við sama mánuð í fyra á breytilegu verðlagi og frá því í janúar hefur áfengissalan aukist um rúm 28 prósent.

Þetta er margfalt meiri veltuaukning en í öðrum vöruflokkum í dagvöruverslun og er tvöfalt meiri en áður hefur sést frá árinu 2002 að RAnnsóknasetrið fór að mæla dagvöruveltu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×