Innlent

Yifrlögregluþjónn sem fékk áminningu farinn í veikindaleyfi

Yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki hefur hætt störfum vegna veikinda. Skammt er síðan hann fékk áminningu og segir sýslumaður að átök fari ekki vel með fólk.

Miklar illdeilur hafa verið innan lögregluliðsins í Skagafirði og átök milli sýslumanns og yfirlögregluþjóns. Stöð 2 sagði frá því á dögunum að sýslumaður hefði veitt yfirlögregluþjóni, Birni Mikaelssyni, áminningu í sex liðum en Björn vildi ekki una því og krafðist að áminningin yrði afturkölluð. Það var ekki gert og hefur yfirlögregluþjónn nú ráðið sér lögfræðing til að reyna að höfða ógildingarmál fyrir dómstólum.

Þá hafa mannaskipti verið tíð innan lögreglunnar í Skagafirði og hafa lögreglumenn skipst í tvö horn. Önnur fylkingin hefur stutt Ríkharð Másson sýslumann en hin hefur stutt Björn Mikaelsson.

Sýslumaður staðfesti í samtali við fréttastofu í morgun að Björn hefði síðastliðinn föstudag farið fram á sex mánaða veikindafrí og hætt störfum samdægurs. Sýslumaður sagði að það segði sig sjálft að átök færu ekki vel með heilsu fólks en sagði veikindi yfirlögregluþjóns að öðru leyti einkamál. Lögmaður Björns Mikaelssonar hefur sagt að Björn hafi orðið fyrir einelti.

Sýslumannsembættið skoðar nú hvort fjölgað verður í liðinu í forföllum Björns Mikalessonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×