Innlent

Gaf sig fram við lögreglu

Fimmti aðilinn sem lögreglan leitaði vegna þjófnaðar á skotvopnum í Hafnarfirði er nú fundinn. Hann gaf sig fram í gærkvöld eftir að lögreglan hafði náð tali af honum.

Maðurinn, sem er rétt rúmlega tvítugur, viðurkenndi þátt sinn í málinu og einnig aðild sína að öðrum þjófnaðarmálum á höfuborgarsvæðinu að undanförnu. Manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku og telst málið upplýst. Fjórum öðrum mönnum sem handteknir voru vegna málsins hefur einnig verið sleppt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×