Enski boltinn

Engin sjónvarpstæki hjá varamannaskýlunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Richard Scudamore.
Richard Scudamore. Nordic Photos / Getty Images

Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar hefur ákveðið að banna notkun sjónvarpstækja við varamannaskýlin í leikjum deildarinnar.

Richard Scudamore, stjórnarformaður, segir að þetta sé tilkomið þar sem knattspyrnustjórar hafi tekið það upp að skoða endursýnd atvik í sjónvarpinu og gagnrýnt störf dómara ef þeir eru ekki sáttir við það sem þeir sáu.

Scudamore sagði enn fremur að það hafi verið félögin sjálf sem hafi ákveðið þetta í kosningu á fundi félaganna nú fyrr í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×