Hert lyfjaeftirlit í úrvalsdeildinni 11. nóvember 2008 16:12 Adrian Mutu var rekinn frá Chelsea eftir að hafa notað kókaín árið 2004 AFP
Til stendur að herða lyfjaeftirlit til muna í ensku úrvalsdeildinni frá og með næsta ári þegar hópur leikmanna í deildinni mun gangast undir ströng próf með óreglulegu millibili. Eins og staðan er í dag er aðeins einn leikmaður úr hvoru liði sendur í lyfjapróf eftir leiki, en það er ekki nálægt því stranga eftirliti sem tekið hefur verið upp í mörgum öðrum íþróttagreinum samkvæmt stöðlum Alþjóða lyfjaeftirlitsins. Þessi nýja ráðstöfun verður framkvæmd í samráði við leikmannasamtökin á Englandi og fer eftir nýjum reglum lyfjaeftirlitsins sem taka gildi um áramótin. Þetta átak mun fara í gang í úrvalsdeildinni í júlí á næsta ári, en þá verður fylgst mjög náið með þrjátíu leikmönnum úr deildinni. Þeim verður gert að gera nákvæmlega grein fyrir ferðum sínum og geta átt von á að fara í lyfjapróf fyrirvaralaust. Ekki hefur verið gefið upp hvaða leikmenn þetta verða eða hvernig þeir veða valdir. Enskir knattspyrnumenn hafa átt það til að rata á síður blaðanna vegna lyfjamála undanfarin ár. Rio Ferdinand hjá Manchester United fékk átta mánaða keppnisbann árið 2003 þegar hann skrópaði í lyfjapróf hjá félaginu. Sama ár féll markvörðurinn Mark Bosnich á lyfjaprófi hjá Chelsea eftir að hafa notað kókaín og ári síðar gerðist annar Chelsea-maður, Adrian Mutu, sekur um sama brot. Báðir voru reknir frá félaginu. Lyfjapróf utan keppni voru fyrst tekin upp í frjálsum íþróttum árið 1989. Það var árið eftir að kanadíski spretthlauparinn Ben Johnson féll á lyfjaprófi eftir að hafa sett heimsmet í 100 metra hlaupi á ÓL í Seúl.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Sjá meira