Spyr hvort Sjálfstæðisflokkurinn sé á leið til Munchen 26. desember 2008 13:48 Styrmir Gunnarsson fyrrv. ritstjóri Morgunblaðsins.
Styrmir Gunnarsson skrifar merkilega grein í dag þar sem hann fjallar um evrópuumræðuna sem nú fer fram í Sjálfstæðisflokknum. Hann spyr m.a hvort við séum á leið til Munchen og vitnar til þess þegar Neville Chamberlain sneri sigri hrósandi heim til Bretlands frá Munchen með undirskrifað pappírblað frá Adolf Hitler sem átti að tryggja frið í heiminum. Í greininni, sem birtist á vefsíðunni evropunefnd.is, setur Styrmir fram rök gegn því að Sjálfstæðisflokkurinn samþykki aðildarviðræður að evrópusambandinu. Hann segir ýmsa hafa leikið lausum hala í því tómarúmi sem skapast hefur í utanríkismálum á undanförnum árum. „Forseti lýðveldisins hefur ferðast um heiminn, talað eins og þar væri fulltrúi stórþjóðar á ferð og flutt ræður, sem mörgum var þá ljóst að voru ekki annað en innihaldslaus orð en þjóðin öll gerir sér nú grein fyrir. Núverandi utanríkisráðherra hóf feril sinn í því embætti með barnalegum hugmyndum um, að Ísland gæti lagt eitthvað, sem máli skipti af mörkum til lausnar deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Þessi ofurhroki á alþjóðavettvangi birtist skýrast í framboði okkar til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Nú er þessi blaðra sprungin," skrifar Styrmir í greininni. Hann nefnir einnig að í umræðunum um málefni Íslands og Evrópusambandsins hafi komið fram það sjónarmið að á ferðinni sé friðþæging gagnvart Samfylkingunni til þess að koma í veg fyrir stjórnarslit. „Með þeirri orðanotkun er raunverulega spurt, hvort Sjálfstæðisflokkurinn sé á leið til Munchen en nú í haust voru liðin 70 ár frá því að Neville Chamberlain sneri sigri hrósandi heim til Bretlands frá Munchen með pappírsblað, sem þeir höfðu sett nafn sitt á, hann og Adolf Hitler og Chamberlain taldi að mundi tryggja frið í heiminum um okkar daga." Styrmi dettur ekki í huga að Sjálfstæðisflokkurinn sé á leið til Munchen en til þess að flokkurinn slysist ekki í þá veferð segir hann mikilvægt að grasrótin í flokknum taki af skarið.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Sjá meira