Innlent

Erfitt að meta hvort krónan haldi áfram að veikjast

Sérfræðingar segja erfitt að segja til um hvort gengi krónunnar haldi áfram að veikjast eftir helgi en krónan hefur ekki verið veikari í sex ár.

Krónan veiktist býsna hratt í síðustu viku en gengi hennar féll um hátt í sex prósent. Evran er nú um 111 krónur og bandaríkjadalurinn um 71 króna. Jón Bjarki Bentsson hagfræðingur hjá Greiningardeild Glitnis segir erfitt að segja til um framhaldið og hvort krónan haldi áfram að veikjast eftir helgi. Jón Bjarki segir það ráðast af því hvernig fyrri hluti næstu viku verði. Ef það koma þokkalegar fréttir af mörkuðum og það dregur úr þeirri hræðslu sem núna ríkir þá telur Jón Bjarki að krónan geti sótt í sig veðrið að nýju. Hann telur þó að hún muni eiga undir högg að sækja á meðan að aðgangur að erlendu lausafé er jafn lítill og nú er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×