Lögreglumönnum fækkað töluvert 9. mars 2008 19:30
Lögreglumönnum á Suðurnesjum hefur fækkað um rúm 20 prósent síðustu misseri sökum fjárskorts. Ef halda á því þjónustustigi sem nú er hjá embættinu verður að koma til aukafjárveiting. Verið er að skoða hvort alvarleg skekkja sé í rekstrargrunninum sem fjárheimildir til embættisins eru byggðar á. Áður en til sameiningar lögreglu-, sýslumanns- og tollaembætta á Suðurnesjum kom störfuðu um 90 lögreglumenn á svæðinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er þeir nú um 70 talsins og hefur þeim því fækkað um 22 prósent á skömmum tíma. Að sama skapi hefur flugumferð um Keflavíkurflugvöll aukist um fimmtung og kröfur um hert eftirlit með flugfarþegum eru meiri. Eins og greint hefur verið frá í fréttum Stöðvar 2 þá gerir rekstraráætlun embættisins ráð fyrir að fara um 200 milljónum fram yfir fjárheimildir á þessu ári. Dómsmálaráðherra hefur hins vegar sagt að það gangi ekki og að virða skuli fjárlög. Heimildir fréttastofu herma að það sé ekki hægt nema með niðurskurði og þá aðallega með því að fækka lögreglumönnum enn frekar. Nú er verið að skoða hvort alvarleg skekkja hafi verið í rekstrargrunninum sem fjárheimildir embættisins eru byggðar á. Yfirmenn lögregluembættisins funda á morgun í dómsmálaráðuneytinu þar sem þeir munu skýra sjónarmið sín. Lögreglumönnum hefur fækkað víðar en á Suðurnesjum. Eins og fram hefur komið í fréttum er mikil óánægja meðal lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu með ástandið og þá hefur lögreglan á Selfossi kvartað undan manneklu. Sömu sögu er að segja á Akureyri og víðar. Þeir lögreglumenn sem fréttastofa hefur rætt við að undanförnu segja að það hafi aldrei verið markmiðið með sameiningu embætta, heldur hafi átt að hagræða í yfirstjórn og á stoðsviðum lögreglu. Nú hafi menn hins vegar áhyggjur af því hvert stefni ef áframhald verður á fækkun lögreglumanna.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira