Féll niður af 47. hæð og lifði af 5. janúar 2008 18:44
Gluggaþvottamaður í New York var svo sannarlega ekki feigur þegar hann féll niður af 47. hæð háhýsis á Manhattan í síðasta mánuði og lifði af. Alcides Moreno sem er 37 ára innflytjandi frá Equador féll af 47. hæð, næstum 150 metra, 7. desember þegar vinnupallur sem hann og bróðir hans notuðu við gluggaþvott gaf sig og þeir hröpuðu til jarðar. Bróðir hans lést við fallið. Moreno er með fullri meðvitund, getur hreyft útlimi, andað sjálfur og talar við fjölskyldu sína. Læknar við Weill Cornell sjúkrahúsið í New York tilkynntu á fimmtudag að bati hans væri með ólíkindum. Ástand Moreno var hörmulegt þegar hann var lagður inn á spítalann. Báðir fæður og hægri handleggur voru margbrotnir. Hann var með alvarlega áverka á bringu, kvið og mænu og fékk tvöfalt blóðmagn fyrstu klukkustundirnar. Læknar komu fyrir slöngu í heila hans til að minnka bólgur og skáru kvið hans opinn til að minnka þrýsting á líffæri. Hann var settur í öndunarvél, en ástand hans var svo óstöðugt að læknar óttuðust að minnsta hreyfing gæti orðið honum að bana. Þess vegna framkvæmdu þeir fyrsta uppskurðinn án þess að færa hann á skurðstofu. Philip Barrie yfirlæknir skurðlækninga á Presbyterian sjúkrahúsinu í New York segist ekki vita hvað eigi að kalla þenna ótrúlega bata. Þeir sem trúi á kraftaverk geti svo sannarlega kallað þetta það. Helmingur þeirra sem falla af fjórðu hæð látast við fallið. Rannsókn á því af hverju vinnupallinn gaf sig er enn í gangi.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira