Skerða verður nám fanga að óbreyttu 29. desember 2008 06:00 Nám fanga þar verður að líkindum skert ef ekki kemur til fjárframlag á fjáraukalögum til að kosta sérstakan námsráðgjafa.
Skerða verður nám fanga ef ekki kemur til fjárframlag á fjáraukalögum. Fjármagn vantar til að kosta áfram sérstakan námsráðgjafa fyrir fangelsin hér á landi. Þetta segir Örlygur Karlsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ríkisstjórnin samþykkti í janúar í fyrra að ráðinn yrði námsráðgjafi í fangelsin, að því er Örlygur greinir frá. Mál skipuðust á þann veg að námsráðgjafinn yrði á vegum Fjölbrautaskóla Suðurlands, sem myndi greiða honum laun fyrir starf hans í öllum fangelsum landsins. Ráðinn var starfsmaður, fyrstu mánuðina í hálft starf, en síðan í fullt starf frá og með 1. ágúst. Þetta er í fyrsta skipti, að sögn Örlygs, sem námsráðgjafi hefur verið ráðinn beint í fangelsin. Í frumvarpi til fjáraukalaga nú er ekki gert ráð fyrir fjárhæð til stöðugildis námsráðgjafans. „Nú erum við búin að greiða einhverjar milljónir til starfseminnar á þessu ári,“ útskýrir Örlygur. „Ef það kemur enginn peningur í hana á næsta ári verð ég að skera einhvers staðar niður á móti því. Auk þessa er svo niðurskurður í kerfinu í heild. Það liggur því fyrir að skera niður í kennslu fanganna á Litla-Hrauni ef ekki kemur til fjárveiting. Ég vona að þetta sé einhver misskilningur, sem verið sé að leiðrétta, en ekki sé um að ræða beinan niðurskurð. Ég vil vera bjartsýnn og trúa því að til þessa þurfi ekki að koma.“ Örlygur segir að námsráðgjafinn hafi verið að vinna mjög gott starf við að aðstoða fólk í fangelsum landsins við að átta sig á því hvaða nám það vilji stunda og vekja samhliða því námsáhuga hjá föngunum. „Ef ekki fæst fjárveiting erum við að snúa til baka og fara á núllreitinn aftur. Það væru mikil vonbrigði fyrir alla sem tengjast þessu. Það er verið að reyna að endurhæfa menn úti í fangelsunum og koma þeim aftur út í lífið. Námið er einn hluti slíkrar endurhæfingar.“ Örlygur kveðst hafa leitað svara um framhald málsins hjá viðkomandi stjórnvöldum. Þau svör liggi ekki fyrir.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Fleiri fréttir Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Sjá meira