Innlent

Rannsaka upptökur úr eftirlitsmyndavél við Hrafnhóla

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar í dag að rannsaka upptökur úr eftirlitsmyndavél í anddyri fjölbýlishússins við Hrafnhóla, þar sem eldsvoði varð í gærmorgun.

Eldurinn kviknaði á tveimur stöðum í íbúðinni, sem var mannlaus þegar að var komið, og leikur grunur á að kveikt hafi verið í. Engin hefur enn verið yfirheyrður vegna málsins.

Mikil óregla hefur verið á íbúunum og lögregla hvað eftir annað þurft að skerast í leikinn. Þá hefur húsfélagið unnið að því að fá þá borna út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×