Mál Jónínu Ben fyrir mannréttindadómstól Evrópu 17. mars 2008 18:37
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur samþykkt að taka upp kæru Jónínu Benediktsdóttur á hendur íslenska ríkinu vegna brota á mannréttindasáttmálanum. Kæran var send eftir að dómstólar landsins höfnuðu kröfu Jónínu um að setja lögbann á birtingu tölvupósta tengda Baugsmálinu. Árið 2005 var linnulítið fjallað um Baugsmálið í fjölmiðlum og þá um haustið birti Fréttablaðið tölvupósta sem farið höfðu milli Jónínu Benediktsdóttur og ýmissa nafngreindra aðila. Fyrsti pósturinn var birtur í Fréttablaðinu 24. september og vakti gríðarlega athygli. Sá póstur var frá Styrmi Gunnarssyni ritstjóra Morgunblaðsins til Jónínu og þar féllu meðal annars hin fleygu orð um að málið væri eins innmúrað og innvígt og nokkur hlutur gæti verið. Brot úr tölvupóstunum birtust í þrjá daga samfleytt, en í þeim komu fram ýmsar upplýsingar um aðdraganda Baugsmálsins og gáfu þeim orðrómi byr undir báða vængi að málið ætti sér pólitískar hliðar. Dómstólar hér höfnuðu kröfu Jónínu um lögbann - á þeim forsendum að innihald tölvupóstanna hefði átt erindi til almennings. Jónína kærði þá íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu fyrir brot á mannréttindasáttmálanum um rétt til friðhelgi einkalífs og bréfaskipta. Dómstóllinn hefur tekið málið upp og gefur ríkisstjórn Íslands frest til 26. júní til að svara spurningum dómstólsins eða ljúka málinu með sátt.
Mest lesið Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Sérveitin í aðgerð á Selfossi Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Fleiri fréttir Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin í aðgerð á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Sjá meira