Innlent

Fundu fíkniefni hjá tveimur föngum á Litla-Hrauni

MYND/Stefán

Tvö fíkniefnamál kom upp á Litla-Hrauni í liðinni viku. Þar fundu fangaverðir lítilræði af fíkniefnum við klefaleit.

Þriðja fíkniefnamálið hjá lögreglunni á Selfossi kom upp þegar lögreglumenn voru í almennu umferðareftirliti í Hveragerði þar sem þeir fundu marijúana á ökumanni sem afskipti voru höfð af. Ökumaðurinn var einnig grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna við aksturinn eftir því sem segir í frétt lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×