Skattamál Jóns Ólafs í 6 ár til rannsóknar 17. mars 2008 19:00 Jón Ólafsson
Ákvörðun verður tekin um það á næstu vikum hvort ákæra verði gefin út gegn Jóni Ólafssyni athafnamanni, vegna meintra skattsvika. Skattamál Jóns hafa verið í rannsókn hjá Ríkisskattstjóra og Ríkislögreglustjóra í á sjötta ár, en tilraunir hans fyrir dómstólum til að fá rannsóknina fellda niður, hafa ekki borið árangur. Skattrannsóknarstjóri ríkisins hóf rannsókn á skattskilum Jóns Ólafssonar í lok febrúar 2002. Jóni var gefið að sök að hafa skilað efnislega röngum skattframtölum vegna tekjuáranna 1998-2001, vantalið eignir sínar, ætlaðan söluhagnað af eignum og launatekjur. Rannsókn Skattrannsóknarstjóra lauk fyrir tæpum fimm árum, og var málinu vísað til rannsóknar ríkislögreglustjóra í lok desember sama ár. Þar hefur málið verið til rannsakað áfram án þess að ákæra væri gefin út. Jón höfðaði mál á hendur ríkislögreglustjóra árið 2006. Hann krafðist þess að rannsóknin yrði felld niður vegna þess að samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu væri óheimilt að tvírannsaka og tvírefsa fyrir sama brot. En skattrannsóknarstjóri hafði þá beitt Jón skattsektum vegna málsins og á of langa málsmeðferð. Kröfu Jóns var hafnað bæði í héraði og í Hæstarétti. Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra segir rannsókn málsins hafa lokið fyrir um einu ári. Málið sé umfangsmikið, annir starfsmanna embættisins miklar og því hafi málið tafist. Búast megi við niðurstöðu á næstu vikum. Ragnar Aðalsteinsson lögmaður Jóns segir málið snúast um mismunandi túlkun á skattalögum, þar á meðal hvort skattleggja skyldi Jón í Lundúnunum þar sem hann bjó með fjölskyldu sinni eða í Reykjavík.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Sjá meira