Innlent

Smásöluverð lyfja oftast hæst hér í samanburði á Norðurlöndum

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. MYND/Stefán

Smásöluverð á lyfjum reyndist hæst á Íslandi í 15 tilvikum 33 í samanburði Lyfjagreiðslunefndar á lyfjaverði í fjórum norrænum ríkjum í marsmánuði.

Teknar voru 33 veltuhæstu pakkningar sem Tryggingastofnun niðurgreiddi fyrir landsmenn árið 2006 og verð þeirra hér á landi borið saman við verð í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Í þrettán tilvikum var verðið hæst í Danmörku en fimm sinnum í Svíþjóð. Tuttugu og þrjár af pakkningunum reyndust ódýrastar í Noregi en tvisvar var verðið lægst á Íslandi.

Þegar horft er til heildsöluverðs reyndist það hæst á Íslandi í tveimur tilvikum af 33 en lægst í fimm tilvikum. Verðið reyndist hins vegar oftast hæst í Danmörku, eða í 18 tilvikum, en í 21 tilviki var heildsöluverðið lægst í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×