Sakar fjölmiðla um að draga upp svarta mynd af fasteignamarkaðnum 17. mars 2008 15:09 Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala.
Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, telur umfjöllun fjölmiðla um ástandið á fasteignamarkaði undanfarið ekki forsvaranlega. Verið sé að draga upp óeðlilega svarta mynd af ástandinu og tína til dæmi sem séu algjörar undantekningar, t.d. þegar greint var frá því að verð eigna væri í sumum tilfellum komið niður fyrir upphæð áhvílandi lána. „Markaðurinn er í lægð, það er engin spurning. Við erum bara að bíða eftir þessum tillögum frá viðskiptaráðherra um hvað muni gerast í framhaldinu með stimpilgjöldin. Fólk er að bíða," sagði Grétar og bætti því við að afstaða ungs fólks sem héldi að sér höndum með fyrstu kaup væri fullkomlega skiljanleg, þarna væri um að ræða upphæðir sem numið gætu hundruðum þúsunda en stimpilgjald nemur 1,5% af upphæð láns. Grétar telur seljendur fasteigna nú hafa raunhæfari hugmyndir um hvaða verð beri að setja upp fyrir eignir. „Fólk hefur verið með talsvert óraunhæfar hugmyndir um verð á eignum sínum. Undanfarið hafa eignir bara selst á því verði sem fólk hefur sett upp, núna er fólk aðeins farið að leiðrétta og setja eðlilegt verð á eignir sínar. Margir hafa sett upp ákveðið verð á eign sína og svo þurft að lækka það um margar milljónir og fara þá að tala um verðlækkun út frá einhverjum hugmyndum sem þeir hafa gert sér. Fasteignasali kemur að málinu sem sérfræðingur þegar hann verðmetur eign. Hann setur ákveðið verð á eignina en eigandinn nefnir svo hærri tölu og hann ræður verðinu endanlega. Ég held að það sé dálítið algengt að fólk sé að reyna að hanga í einhverju verði sem er oft óraunhæft. Þess vegna er alveg eðlilegt að kaupendur spyrji hvort verð ákveðinnar fasteignar sé verð sem fasteignasali setti á eignina eða seljandinn. Ég held að á næstu mánuðum verði mun minna um það að fólk setji óraunhæft verð á eignir sínar og það fari að taka aukið mark á verðmati fasteignasalans," sagði Grétar sem enn fremur telur umfjöllun fjölmiðla undanfarið einkennast af neikvæðni og vera að sumu leyti ekki forsvaranlega. „Þessar fréttir um að verð eigna hafi lækkað niður fyrir stöðu áhvílandi lána eru algjörar undantekningar. Að stilla slíku dæmi upp og segja að markaðurinn sé á mikilli niðurleið er hreinlega ekki forsvaranlegt. Það er alveg ljóst að fólk sem hefur verið að kaupa eignir er ekkert að selja þær hægri vinstri á allt öðru verði en það keypti þær á. Þetta er ekki eins og hlutabréfamarkaðurinn þar sem eitthvert „panikk"-ástand verður og fólk byrjar að selja eignir, þannig er þessi markaður ekki," sagði Grétar enn fremur og klykkti út með því að á morgun, þriðjudag, fundaði greiningarnefnd Félags fasteignasala sem í kjölfarið gæfi út spá um það ástand sem búast má við á fasteignamarkaðnum næstu mánuði. Vextirnir verða að breytast Elías Haraldsson, sölustjóri fasteignasölunnar Húsavíkur, sagði markaðinn vissulega vera í niðursveiflu um þessar mundir enda vaxtastefna bankanna eins ókræsileg og mest mætti vera. „Það er ekki von að nokkur maður vilji taka lán á þessum kjörum, 6 - 7 prósent til 40 ára, það er eitthvað sem hefur bara ekki þekkst hérna," sagði Elías og bætti því við að óheppilegt væri að stjórnvöld hefðu gefið út fyrirheit um niðurfellingu stimpilgjalda án þess að aðhafast meira í málinu. Slæmt væri að slá þessu fram ef ekkert væri búið að ákveða hvernig standa ætti að framkvæmdinni. Hann sagðist ekki þekkja hvernig ástandið væri hjá fasteignasölum almennt, markaðurinn væri bara rólegur og hugsanlegt að farið væri að verða þröngt í búi hjá einhverjum fasteignasölum. Þetta væri þó auðvitað mismunandi eftir því hve mikla yfirbyggingu menn væru með og hvernig þeir væru búnir undir harðæri. „Vextirnir verða að breytast," sagði Elías að lokum. Ekki náðist í viðskiptaráðherra til að ræða við hann um stimpilgjöld fasteignalána.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Fleiri fréttir Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Sjá meira